Hönnunarmars / Design March

Hönnunarmars 2024

 

Úr hafinu dregur :Orn Smári fiska og form sem hann skoðar í ýmsu samhengi og kallar Sæ:flúr

:Orn Smári sýnir á Hönnunarmars tilraunir, skissur og nokkrar vörur með fiskamynstri sem hann hefur unnið að síðustu árin. Þó kveikjan hafi verið gegnum vinnu hans fyrir Íslandsstofu, Flikk Flakk og fleiri, kynntist hann fiski fyrst af alvöru í fiskbúðum pabba síns og afa. Nálgun hans er nokkuð önnur en flökun og nætursöltun, enda bjóða form fisksins, hvort það er þorskur, skata eða annar fiskur upp á endalausa möguleika til mynsturgerðar.

Nánar á Sæflúr.is

Velkomin, ég verð á staðnum:

Miðvikudagur 24. apríl : 18:00 - 21:00

Fimmtudagur 25. apríl, Sumardagurinn fyrsti 12:00 - 21:00

Föstudagur: 12:00 - 21:00

Laugardagur: 12:00 - 17:00

Sunnudagur: 13:00 - 17:00

 
Hönnunarmars / Design March

Hönnunarmars / Design March