Um Fiskastykki

 

:Orn Smári dregur innblástur sinn úr hafinu. Ungur var hann sendur vestur á firði þar sem eðlileg afþreying fyrir unga drengi var að sitja saman á bryggjusporðinum og dorga. Að fara með frændum á smáum bát með utanborðsmótor að vitja grásleppuneta var hin mesta upplifun.

Fisksalarnir og sjómennirnir Gísli Ben, pabbi hönnuðarins og Benjamín Jónsson, afi hans hafa haft meiri áhrif en þá grunaði þó svo að :Orn Smári nálgist hráefnið á annan hátt en þeir. Fisksölum fylgdu óteljandi ferðir suður með sjó að sækja ferskan fisk ýmist seint að kvöldi eða eldsnemma að morgni. Uppskipun var með einföldum hætti, beint á pallbílinn, Chevrolet 1952 árgerð og segl strengt yfir.

:Orn Smári gekk í eigin reynslubrunn af síldar-vinnu í Kópavogi um miðjan 7. áratuginn þegar hann hannaði sitt fyrsta frímerki áratugum síðar. Síst átti hann von á að fisksala myndi liggja fyrir honum.

Söluaðilum er frjálst að nota myndirnar hér að neðan á samfélagsmiðum og í öðru kynningarstarfi.