Síldarbein

Síldarbein

 

Silfur hafsins litaði ekki aðeins hafið,

það litaði lífið og efnahag landsins, skóp síldarstúlkur og síldarævintýri. Orð eins og dixilmaður, drífholt, peningalykt, brakkar og bryggjuball voru á allra vörum og tunnan sem saltað var í hafði ekki lok heldur efri og neðri botn.

The Silver of the Sea didn’t just decorate the ocean, it was integral to life and the economy of Iceland. We had herring girls and herring adventures. Romance surrounded this and dockside parties with accordion music were one of the wonderful highlights.


:Orn Smári dregur innblástur sinn úr hafinu. Ungur var hann sendur vestur á firði þar sem eðlileg afþreying fyrir unga drengi var að sitja saman á bryggjusporðinum og dorga. Að fara með frændum á smáum bát með utanborðsmótor að vitja grásleppuneta var hin mesta upplifun.

Fisksalarnir og sjómennirnir Gísli Ben, pabbi hönnuðarins og Benjamín Jónsson, afi hans hafa haft meiri áhrif en þá grunaði þó svo að :Orn Smári nálgist hráefnið á annan hátt en þeir. Fisksölum fylgdu óteljandi ferðir suður með sjó að sækja ferskan fisk ýmist seint að kvöldi eða eldsnemma að morgni. Uppskipun var með einföldum hætti, beint á pallbílinn, Chevrolet 1952 árgerð og segl strengt yfir.

:Orn Smári gekk í eigin reynslubrunn af síldar-vinnu í Kópavogi um miðjan 7. áratuginn þegar hann hannaði sitt fyrsta frímerki áratugum síðar. Síst átti hann von á að fisksala myndi liggja fyrir honum.


 
Síldarbein

Síldarbein

Herringbone_5766.jpg
Fiskar Viskastykki uppraðað 2 copy.jpg